Add parallel Print Page Options

5 Ég hóf aftur upp augu mín og sá bókrollu, sem var á flugi.

2 Þá sagði hann við mig: "Hvað sér þú?" Ég svaraði: "Ég sé bókrollu á flugi, tuttugu álna langa og tíu álna breiða."

3 Þá sagði hann við mig: "Þetta er bölvunin, sem út gengur yfir gjörvallt landið, því að sérhverjum sem stelur, verður samkvæmt henni sópað héðan, og sérhverjum sem meinsæri fremur, verður samkvæmt henni sópað héðan."

4 Ég hefi látið hana út ganga _ segir Drottinn allsherjar _ til þess að hún komi inn í hús þjófsins og inn í hús þess, sem meinsæri fremur við nafn mitt, og staðnæmist inni í húsi hans og eyði því bæði að viðum og veggjum.

5 Þessu næst gekk fram engillinn, er við mig talaði, og sagði við mig: "Hef upp augu þín og sjá, hvað þar kemur fram!"

6 Ég sagði: "Hvað er þetta?" Þá sagði hann: "Þetta er efan, sem kemur í ljós." Þá sagði hann: "Þetta er misgjörð þeirra í öllu landinu."

7 Þá lyftist allt í einu upp kringlótt blýlok, og sat þar kona ein niðri í efunni.

8 Þá sagði hann: "Þetta er Vonskan!" _ kastaði henni ofan í efuna og kastaði blýlokinu ofan yfir opið.

9 Síðan hóf ég upp augu mín og sá allt í einu tvær konur koma fram, og stóð vindur undir vængi þeim _ því að þær höfðu vængi sem storksvængi _ og hófu þær efuna upp milli jarðar og himins.

10 Þá sagði ég við engilinn, sem við mig talaði: "Hvert fara þær með efuna?"

11 Hann svaraði mér: "Þær ætla að reisa henni hús í Sínearlandi, og þegar það er búið, þá setja þær hana þar á sinn stað."